OptimICE krapavél í Helgu Maríu RE-1

OptimICE krapavél í Helgu Maríu RE-1

KAPP er þessa stundina að setja OptimICE krapavél og forðatank um borð í Helgu Maríu RE-1

Helga María, sem er í eigu Brim, er ísfisktogari gerður út frá Reykjavík. Hún var smíðuð í Noregi 1988 og er 883 brúttólestir. Helga María hét áður Haraldur Kristjánsson.

Um borð í Helgu Maríu er mikil áhersla lögð á gæði aflans og hluti af því er að nota OptimICE krapakerfi, sem er framleitt hjá KAPP og notað um allan heim.

Brim hf valdi eftirfarandi OptimICE búnað:

• BP-140 krapavél

• T-4000 forðatank

OptimICE hraðkæling

OptimICE® er fljótandi krapaís sem framleiddur er úr sjó um borð í skipinu og leysir af hólmi hefðbundinn flöguís. 

Hraðkælingin umlykur fiskinn, kemur honum hratt niður fyrir 0°C og heldur honum í kringum -0,5 °C allan veiðitúrinn, í löndun, í flutningi þvert í kringum landið og allt til endanlegs viðskiptavinar.

Kælikeðjan rofnar því aldrei með OptimICE® hraðkælingu og fiskurinn helst ferskur í hámarksgæðum allan tímann.

 

KAPP_Optimice_Brim_Helga_Maria_RE1_Liquid_Slurry_ice_Rapid_Cooling

Andrés Þórarinsson, yfirvélstjóri, stendur hér við OpitmICE krapavélina og hlakkar mikið til að þurfa ekki lesta skipið með á þriðja hundrað fiskikara fullum af flöguís í hverjum túr. Svo verður vinnan fyrir mannsskapinn mun auðveldari.

 

KAPP_Optimice_Brim_Helga_Maria_RE1_Liquid_Slurry_ice_Rapid_Cooling

Helga María RE-1 tók sig vel út í Reykjavíkurhöfn beint við hliðina á höfuðstöðvum Brim.

 

KAPP_Optimice_Brim_Helga_Maria_RE1_Liquid_Slurry_ice_Rapid_Cooling

Starfsmenn KAPP að standsetja vélina.

 

KAPP_Optimice_Brim_Helga_Maria_RE1_Liquid_Slurry_ice_Rapid_Cooling

Huga þarf vel að öllum lögnum sem liggja frá forðatanknum og niður í lest.

 

KAPP_Optimice_Brim_Helga_Maria_RE1_Liquid_Slurry_ice_Rapid_Cooling

Mikil hagræðing er af OptimICE krapavélinni. Hún framleiðir krapann um borð í skipin og vinnur hann beint úr sjónum. Síðan er krapanum bara sprautað yfir fiskinn úr slöngum í stað þess að moka flöguís með skóflu.

 

KAPP_Optimice_Brim_Helga_Maria_RE1_Liquid_Slurry_ice_Rapid_Cooling

Höfuðstöðvar Brim á Granda eru glæsilegar.

 

KAPP_Optimice_Brim_Helga_Maria_RE1_Liquid_Slurry_ice_Rapid_Cooling

Starfsmenn KAPP taka sig vel út við hliðana á OptimICE forðatanknum.

 

KAPP_Optimice_Brim_Helga_Maria_RE1_Liquid_Slurry_ice_Rapid_Cooling

Gott pláss er fyrir krapavélina um borð í Helgu Maríu.

 

KAPP_Optimice_Brim_Helga_Maria_RE1_Liquid_Slurry_ice_Rapid_Cooling

Hér sjáum við hluta af vinnsluhúsnæði Brim á Granda.

 

KAPP_Optimice_Brim_Helga_Maria_RE1_Liquid_Slurry_ice_Rapid_Cooling

 

KAPP_Optimice_Brim_Helga_Maria_RE1_Liquid_Slurry_ice_Rapid_Cooling

 

Fleiri fréttir

  • Frábæri sjávarútvegssýning í Barcelona lokið

    Frábæri sjávarútvegssýning í Barcelona lokið

  • Öflugt renniverkstæði hjá KAPP

    Öflugt renniverkstæði hjá KAPP

  • Rafstöð sett upp fyrir Krónuna á Fitjum

    Rafstöð sett upp fyrir Krónuna á Fitjum

  • Óson lyktareyðing fyrir veitingastaði

    Óson lyktareyðing fyrir veitingastaði

  • Mikil þróun á kæli- og frystibúnaði. Bylting í meðferð hráefnis.

    Mikil þróun á kæli- og frystibúnaði. Bylting í meðferð hráefnis.

  • Mikið úrval af hurðum hjá KAPP

    Mikið úrval af hurðum hjá KAPP

  • Samsettir frysti- og kæligámar hjá Sælkerabúðinni

    Samsettir frysti- og kæligámar hjá Sælkerabúðinni

  • Skötuveisla KAPP sló öll met

    Skötuveisla KAPP sló öll met

  • Pikkoló - sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu

    Pikkoló - sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu

  • Reynir Pétur kominn heim

    Reynir Pétur kominn heim

  • KAPP er Framúrskarandi fyrirtæki 2019-2023

    KAPP er Framúrskarandi fyrirtæki 2019-2023

  • Ný töskubelti í Leifsstöð

    Ný töskubelti í Leifsstöð

  • KAPP og Eðalfiskur skrifa undir samning á Aqua Nor

    KAPP og Eðalfiskur skrifa undir samning á Aqua Nor