Renniverkstæði

KAPP rekur öflugt renniverkstæði með góðum tækjabúnaði og reynslumiklu starfsfólki. Við sérhæfum okkur í rennismíði og fræsivinnu á öllum tegundum plasts og málma. Við leggjum ríka áherslu á góða þjónustu og vandað verk enda eru einkunnarorð fyrirtækisins „Þú finnur traust í okkar lausn“.

Tengiliður

Hvað höfum við uppá að bjóða?

  • CNC Rennismíði

  • CNC Fræsun

  • 3D Prentun

  • Ryðfrí stálsmíði

Hönnun, ráðgjöf og þarfagreining

Reynslumiklir sérfræðingar okkar veita ráðgjöf og þarfagreiningu til þess að finna bestu lausnina fyrir þig. 

Nýsmíði og endurnýjun

Við sinnum bæði nýsmíði og endurnýjun varahluta.

Ryðfrí stálsmíði

Við sérhæfum okkur í ryðfrírri stálsmíði. Suðudeildin okkar er sérútbúin öflugum tækjabúnaði og suðumenn okkar vinna náið með renniverkstæðinu þar sem málin eru leyst hratt og örugglega. 

Efnin sem við smíðum úr

  • Ryðfrítt stál

  • Plast

  • Ál

Tækjabúnaður

Renniverkstæði KAPP er útbúið öflugum tækjabúnaði til þess að takast á við flest öll verkefni eins og CNC rennibekkjum og CNC fræsum.

Þjónusta alla leið

Fjölbreytt starfsemi KAPP gerir okkur kleift að bjóða upp á þjónustu alla leið. Starfsmenn KAPP eru með ólíka menntun, þekkingu og reynslu og að meðaltali eru um 17 iðnaðarstörf hjá okkur hverju sinni. Allar deildir fyrirtækissins vinna saman að einu markmiði sem er að veita framúrskarandi þjónustu enda enda eru einkunnarorð fyrirtækisins „Þú finnur traust í okkar lausn“.

Aðrar þjónustur

Allar þjónustur