Endurbætur á frystibúnaði í Sólborg RE 27

Endurbætur á frystibúnaði í Sólborg RE 27

Þessa dagana er unnið að endurnýjun á frystibúnaði Sólborgarinnar ásamt viðbótum í flökunarbúnaði.

Sólborg RE 27, þessi mikli frystitogari sem er í eigu Útgerðarfélags Reykjavíkurer 825 nettó tonn og 76 m langur skuttogari síðaður í Noregi 1987.

Unnið er að því að breyta honum úr frystitogara sem hefur hingað til hausað fiskinn og heilfryst hann yfir í að hafa fullbúinn flökunarbúnað fyrir fjölbreyttari afurðir.

Samhliða er verið að yfirfara fyrstibúnaðinn og skipta yfir í nýjan þar sem það á við. Einnig er verið að uppfæra ammóníaks kælikerfi. Ammóníak er 100% umhverfisvænt með GWP stuðulinn 0. 

Optimice krapakerfi hefur verið um borð í Sólborginni í mörg ár á stóran þátt í því að gæði aflans hafa verið framúrskarandi. Aflinn er kældur um leið og hann kemur um borð með hraðkælingu sem kemur hitastiginu niður í 0°C á skömmum tíma og heldur því rétt fyrir neðan 0°C þangað til aflinn er unninn.

Á meðfylgjandi myndum má sjá starfsmenn KAPP að störfum við breytingarnar.

 

 

 

 

Fleiri fréttir

  • Frábæri sjávarútvegssýning í Barcelona lokið

    Frábæri sjávarútvegssýning í Barcelona lokið

  • Öflugt renniverkstæði hjá KAPP

    Öflugt renniverkstæði hjá KAPP

  • Rafstöð sett upp fyrir Krónuna á Fitjum

    Rafstöð sett upp fyrir Krónuna á Fitjum

  • Óson lyktareyðing fyrir veitingastaði

    Óson lyktareyðing fyrir veitingastaði

  • Mikil þróun á kæli- og frystibúnaði. Bylting í meðferð hráefnis.

    Mikil þróun á kæli- og frystibúnaði. Bylting í meðferð hráefnis.

  • Mikið úrval af hurðum hjá KAPP

    Mikið úrval af hurðum hjá KAPP

  • Samsettir frysti- og kæligámar hjá Sælkerabúðinni

    Samsettir frysti- og kæligámar hjá Sælkerabúðinni

  • Skötuveisla KAPP sló öll met

    Skötuveisla KAPP sló öll met

  • Pikkoló - sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu

    Pikkoló - sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu

  • Reynir Pétur kominn heim

    Reynir Pétur kominn heim

  • KAPP er Framúrskarandi fyrirtæki 2019-2023

    KAPP er Framúrskarandi fyrirtæki 2019-2023

  • Ný töskubelti í Leifsstöð

    Ný töskubelti í Leifsstöð